Bera

Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Félagið er skráð í kauphöll og fer með eignarhald á leiðandi rekstrarfélögum sem gegna mikilvægu hlutverki á íslenskum markaði.

Nafnið Bera hefur sterka sögulega tengingu við uppruna Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og endurspeglar rætur, styrk og metnað samstæðunnar til framtíðar.

Dótturfélög Beru starfa sjálfstæð og sérhæfð rekstrarfélög sem hvert um sig byggir á traustum grunni þekkingar og reynslu. Ölgerðin er leiðandi fyrirtæki á drykkjarvörumarkaði á Íslandi. Danól sérhæfir sig í innflutningi og markaðssetningu vörumerkja. Gæðabakstur framleiðir og dreifir ferskum og gæðamiðuðum bakarísvörum. Kjarnavörur framleiðir og dreifir fjölbreyttum mat- og neysluvörum.

Hlutverk Beru er að styðja við verðmætasköpun og sjálfbæran vöxt innan samstæðunnar. Félagið mótar heildarstefnu, tryggir skilvirka stoðþjónustu og skapar tækifæri til frekari þróunar og nýsköpunar.

Undir móðurfélaginu er meðal annars sameinuð þjónusta á sviði mannauðsmála, fjármála, stafrænnar þróunar, upplýsingatækni, gæðamála, sjálfbærni, innkaupa og vöruhúsareksturs.

Með því nýtist stærðarhagkvæmni betur og rekstrarfélögin geta einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi og þjónustu við viðskiptavini.

Bera leggur áherslu á ábyrga stjórnarhætti, sjálfbærni og langtímahugsun í öllum sínum verkefnum. Markmið félagsins er að byggja upp öfluga og samkeppnishæfa samstæðu sem skapar verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk, hluthafa og samfélagið í heild.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson

Við hjá Ölgerðinni framleiðum, flytjum inn og seljum drykkjarvörur og matvæli og dreifum þeim um allt land. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Aðeins vörur sem eiga þess kost að vera fremstar í sínum flokki eru settar á markað og hverjum birgi er sinnt eins og hann sé okkar eini. Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, neytendur, starfsfólk og eigendur.

Sölu- og markaðssvið Ölgerðarinnar eru tvö: óáfengir drykkir og áfengir drykkir og fyrirtækjaþjónusta Ölgerðarinnar.

Danól

Danól selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Aðeins vörur sem Danól telur eiga þess kost að vera með þeim fremstu í sínum flokki eru settar á markað.

Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, neytendur, starfsfólk og eigendur.

Danól er skipt upp í þrjár einingar sem hver um sig sér um sitt afmarkaða svið. Sviðin eru matvara, stóreldhús og snyrti- og sérvara. Í hverri einingu fyrir sig starfar fagfólk og viðskiptavinir geta treyst á bæði reynslu og fagmennsku starfsfólks, yfirgripsmikla þekkingu á vörunum okkar sem og afburða þjónustu.

Danól hefur verið starfandi frá árinu 1932, að undanskildu tímabilinu 2006-2015 sameinuð Ölgerðinni.

Danól er dótturfyrirtæki Ölgerðarinnar og starfar í samræmi við sömu gildi, stefnu og siðareglur og móðurfélagið.

Collab Inc

Hjá COLLAB Inc styðjum við við alþjóðlega markaðssetningu og vöxt farsælustu drykkjavöru-nýsköpunar Íslands, þar á meðal vinsælasta virkni drykk landsins, COLLAB – einstakan koffíndrykk með kollageni.

COLLAB Inc er dótturfélag Beru, stærsta drykkjarframleiðanda Íslands, sem jafnframt stendur að baki COLLAB vörunni.

Iceland Spring

Iceland Spring vatn á uppruna sinn í fjöllunum ofan Heiðmerkur. Uppspretta okkar var valin af kostgæfni vegna einangraðrar staðsetningar hennar. Það tryggir náttúrulegt ferli sem skilar einstaklega hreinu og heilnæmu drykkjarvatni. Vatnið hefur því ekki verið snert af mannshendi síðan snjór féll á Bláfjöll fyrir hundruðum ára.

Ólíkt mörgum öðrum vatnstegundum hefur Iceland Spring vatn náttúrulegt hátt sýrustig (pH), án þess að bætt sé við basískum efnum. Það gerir Iceland Spring að einstaklega góðu drykkjarvatni á flöskum.

Gæðabakstur

Gæðabakstur er leiðandi fyrirtæki í brauðgerð á Íslandi og framleiðir ýmsar gerðir af brauði, rúgbrauði , flatkökum, sætabrauði og kökum fyrir neytendur, hótel, veitingastaði, mötuneyti, stofnanir og fyrirtæki.

Hjá okkur starfa reyndir bakarar sem kappkosta við að uppfylla séróskir viðskiptavina okkar enda eru þarfir þeirra oft mismunandi. Við leggjum alúð í að koma til móts við þarfir hvers og eins með sveigjanleika og áreiðanleika í þjónustu. Þetta kunna viðskiptavinir okkar vel að meta og sannast það á vinsældum framleiðslunnar allt frá fyrsta degi.

Kjarnavörur

Kjarnavörur ehf. er íslenskt framleiðslufyrirtæki, stofnað árið 1989. Framkvæmdastjóri þess er Guðjón Rúnarsson. Hjá Kjarnavörum ehf. starfa nálægt 35 starfsmenn á fjórum starfsstöðvum. Skrifstofa og lager er staðsett í Miðhrauni 16 í Garðabæ en framleiðslan fer fram í Kaplahrauni, Bæjarhrauni og Flatahrauni í Hafnarfirði. Kjarnavörur ehf. framleiða vörur bæði undir eigin merkjum og annarra.