Leið okkar að sjálfbærni

Sjálfbær framtíð

Við höfum mikinn metnað á sviði sjálfbærni og erum markvisst að innleiða sjálfbærni í menningu fyrirtækisins. Til að ná framtíðarsýn fyrirtækisins um að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda þarf að huga að sjálfbærni í allri virðiskeðjunni. Okkar viðskiptavinir og neytendur gera kröfu um að versla við fyrirtæki sem stuðla að sjálfbærni og þau fyrirtæki búa yfir og viðhalda hæfari starfsfólki.

Við ætlum að vera í framvarðasveit íslenskra fyrirtækja á sviði sjálfbærni og mæta nútímaþörfum viðskiptavina og neytenda okkar, án þess að skerða möguleika komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum. Framtíðarsýn fyrirtækisins verður náð með því að leggja áherslu á fjóra strauma: sjálfbærni, vöxt, stafræna þróun og fjölbreytileika. Þannig sköpum við virði fyrir alla okkar hagaðila og verðmætasköpun til framtíðar.

Markmið 2025

Starfsánægja

Yfir 85%

Núll slysastefna

0 slys

Losunarkræfni tekna

Losunarkræfni tekna fyrir umfang 1 og 2 dragist saman um 2% á milli ára

Umbætur

Lokið við 500 umbótaverkefni

Orkusamsetning

95% endurnýjanlegir orkugjafar

ISO14001

Innleiða ISO14001

Rafvæðing bílaflota

Bílafloti 68% rafmagnsbílar

UFS-mat Reitunar

Viðhalda A-einkunn hjá Reitun

Meira endurunnið efni í umbúðum framleiðsluvara

100% rPET

Kolefnisspor í vefverslun

Birta kolefnisspor umbúða í vefverslun

Birgjamat

Innleiða ítarlegt birgjamatsferli fyrir Danól

Hringrásarhagkerfisverkefni

Til dæmis hrat úr framleiðslu, endurvinnsla kaffihylkja og verkefni tengd minni matarsóun

Hollari valkostir

Auka úrval hollari valkosta í drykkjarvöru

Sjálfbærnifræðsla

Sjálfbærnifræðsla fyrir allt starfsfólk í Ölgerðarskólanum

Betri loftgæði með nýrri loftræsingu í framleiðslusölum

Uppsetning á nýjum loftræstibúnaði í framleiðslusölum

Sjálfbærniupplýsingagjöf

Sjálfbærnireikningsskil birt í samræmi við evrópska staðla

Tilkynningagátt fyrir ytri aðila

Tilkynningagátt opin ytri aðilum til að tilkynna misferli eða brot

Skógrækt – vottaðar kolefniseiningar

Skipulag og undirbúningur gróðursetningar í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur

UFS-sjálfbærnimat

Hvernig okkur gengur

Ölgerðin fær framúrskarandi einkunn í sjálfbærnimati Reitunar, en félagið hefur farið í gegnum UFS mat á vegum Reitunar frá árinu 2021. Ölgerðin fékk 86 stig af 100 mögulegum og fellur undir flokk A3 ásamt fimm öðrum skráðum félögum á markaði.  Horft er til þriggja meginþátta við UFS-mat; umhverfisþátta, félagsþátta og stjórnarhátta. Í samanburði við aðra íslenska útgefendur er Ölgerðin yfir meðaltali  í öllum flokkum, en meðaltal markaðarins er 73 stig.

Markmið til 2030

Sjálfbær vöxtur

Losunarkræfni tekna í eigin rekstri (umfang 1 og 2)

-63% miðað við árið 2020

Sjálfbær vöxtur

Hollari valkostir

50% miðað við árið 2020

Fjölbreytileiki

Hlutfall kynja

Aldrei hærra hlutfall en 60% af einu kyni

Fjölbreytileiki

Hlutfall kynja

Að minnsta kosti 40/60

Hringrásarhagkerfið

Úrgangur frá starfsemi

99% flokkunarhlutfall

Hringrásarhagkerfið

Pakkningar fyrir eigin framleiðslu

60% endurnýtt hráefni

Kolefnishlutleysi

Orkunotkun

100% endurnýjanleg orka í starfsemi

Kolefnishlutleysi

Kolefnisspor í eigin rekstri (umfang 1 og 2)

-42% miðað við árið 2020

Kolefnishlutleysi

Kolefnisspor framleiðsluvara

-25% miðað við 2020

Kolefnishlutleysi

Útreikningar á losun í aðfangakeðju

Bæta útreikninga og minnka umfang 3

Tengd skjöl

Sjálfbærni í fréttum

18. júní 2026

Bera fær framúrskarandi einkunn í UFS-mati Reitunar

Bera hefur hlotið framúrskarandi einkunn í UFS-mati Reitunar þriðja árið í röð. Félagið fékk 87 stig af 100 mögulegum í mati ársins 2026, sem er hækkun um eitt stig frá fyrra ári. Með þeim árangri flokkast Bera í einkunnaflokk A3 og er meðal þeirra fyrirtækja sem ná hæstu einkunnum í matinu. Jafnframt hlaut félagið hæstu mögulegu einkunn fyrir gæði gagna, eða einkunnina 1. UFS-mat Reitunar leggur mat á frammistöðu fyrirtækja á sviði umhverfisþátta, félagslegra þátta og stjórnarhátta. Bera er yfir meðaltali íslenskra fyrirtækja í öllum meginflokkum matsins, sem endurspeglar markvissa og heildstæða vinnu við að samþætta sjálfbærni við rekstur félagsins. Árangurinn er afrakstur samstillts átaks starfsfólks og stjórnenda við að draga úr umhverfisáhrifum, efla öryggi og vellíðan starfsfólks og byggja upp ábyrga og sjálfbæra starfsemi til framtíðar.

Tengiliður vegna sjálfbærni

Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir

Deildarstjóri sjálfbærni, umbóta og fasteigna