Leiðandi á sviði drykkja, matvæla og sérvöru

Bera

Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Félagið er skráð í kauphöll og fer með eignarhald á leiðandi rekstrarfélögum sem gegna mikilvægu hlutverki á íslenskum markaði.

Fjárhagsdagatal

Bera hf. mun birta afkomutilkynningar, uppgjör og halda aðalfund í samræmi við það sem hér segir:

25. júní 2026

Afkomutilkynning (Tímabilið 1. mars - 31. maí)

8. október 2026

Birting árshlutareiknings fyrstu 6 mánaða fjárhagsársins 2026 (Tímabilið 1. mars - 31. ágúst)

17. desember 2026

Afkomutilkynning (Tímabilið 1. mars - 30. nóvember)

Dótturfélög Beru

Dótturfélög Beru starfa sjálfstæð og sérhæfð rekstrarfélög sem hvert um sig byggir á traustum grunni þekkingar og reynslu.

Undir móðurfélaginu er meðal annars sameinuð þjónusta á sviði mannauðsmála, fjármála, stafrænnar þróunar, upplýsingatækni, gæðamála, sjálfbærni, innkaupa og vöruhúsareksturs.

2025

Sjálfbærniskýrslan

Við höfum mikinn metnað á sviði sjálfbærni og erum markvisst að innleiða sjálfbærni í menningu fyrirtækisins. Til að ná fram framtíðarsýn fyrirtækisins um að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda þarf að huga að sjálfbærni í allri virðiskeðjunni.

Hafa samband

Hér getur þú komið á framfæri fyrirspurn, hrósi, ábendingu um gæðamál eða styrktarbeiðni. Við höfum sett okkur stefnu um meðhöndlun erinda með það að markmiði að stuðla að aukinni ánægju viðskiptavina, gagnsæi og skilvirkni.