24. júlí 2026
Komdu þér á kortið með COLLAB og 66°NORÐUR
Hvert fór sumarið með þig? Í sumar kortleggjum við ferðalög landsmanna um allt land. Vertu með, settu ferðalagið þitt á ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
sjálfbærni
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur hlotið viðurkenningu Sjálfbærniássins árið 2025. Annað árið í röð skoraði Ölgerðin hæst í flokki framleiðslufyrirtækja á Íslandi og fyrir það er starfsfólk fyrirtækisins afar þakklátt og stolt.
Þetta er í annað sinn sem viðurkenning Sjálfbærniássins er veitt. Mælikvarðinn er þróaður af rannsóknarfyrirtækinu Prósent, ráðgjafafyrirtækinu Langbrók og stjórnendafélaginu Stjórnvísi.
Viðurkenningin er dýrmæt hvatning fyrir Ölgerðina sem hvetur okkur áfram að gera enn betur og styrkir trú okkar að við séum á réttri leið í sjálfbærnivegferð okkar.
Markmið Sjálfbærniássins er að veita samanburðarhæfar og hlutlausar upplýsingar um viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni.