26. maí 2026
Broken Taco komið til landsins
Nýtt og litríkt taco vörumerki hefur nú bæst í vöruframboð Danól. Broken Taco sækir innblástur sinn bæði í hefðbundna me ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
fyrirtæki
Karen Ýr Jóelsdóttir hefur tekið við starfi gæðastjóra Ölgerðarinnar og dótturfélaga þess. Hún tekur við starfinu af Guðna Þór Sigurjónssyni, sem nýverið var ráðinn forstöðumaður vaxtar og þróunardeildar félagsins.

Karen tekur við stjórnun og rekstri gæðadeildar og ber ábyrgð á gæðaeftirliti framleiðslu Ölgerðarinnar, auk annarra gæða- og öryggismála þvert á allar deildir og dótturfélaga. Karen situr í gæðaráði Ölgerðarinnar, er formaður HACCP-ráðs og sér um utanumhald gæðakerfis, auk innri og ytri úttekta.
Karen er menntaður matvælafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá Ölgerðinni frá árinu 2016. Hún hóf störf sem sumarstarfsmaður á rannsóknarstofu Ölgerðarinnar og hefur síðan þá sinnt flestum sérfræðistörfum innan gæðadeildar fyrirtækisins, meðal annars hefur hún stýrt innleiðingu á núverandi gæðakerfi.