24. júlí 2026
Komdu þér á kortið með COLLAB og 66°NORÐUR
Hvert fór sumarið með þig? Í sumar kortleggjum við ferðalög landsmanna um allt land. Vertu með, settu ferðalagið þitt á ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
fyrirtæki
Garðar Svansson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Egils áfengra drykkja hjá Ölgerðinni. Garðar hefur starfað hjá Ölgerðinni í tæp 7 ár og hefur meðal annars sinnt starfi vörumerkjastjóra fyrir Carlsberg Group og nú síðast sem sölustjóri Hótela- og veitingasviðs.
„Það er einkar spennandi að taka við sviði sem hefur verið byggt upp undanfarin ár og náð frábærum árangri. Ég hlakka til að takast á við komandi verkefni hjá Ölgerðinni og vera áfram hluti af því frábæra teymi sem hér starfar,“ segir Garðar.
Garðar, sem er þrítugur, er með BS gráðu í alþjóðamarkaðsmálum frá HÍ og hefur hann þegar tekið við starfinu.