Aftur í öll störf

Starfsmaður í vörustjórnun

Við leitum að starfsmanni á vörustjórnunarsvið Beru hf. til að sjá um tollafgreiðslur og birgðareftirlit.

Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Dótturfélög Beru eru m.a. Ölgerðin og Danól.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Tollafgreiðsla
Ráðgjöf í tollamálum
Eftirfylgni með sendingum
Regluleg samskipti við ytri og innri aðila

Hæfniskröfur:

Stúdentspróf, próf frá viðskiptaskólum eða diploma í tollmiðlun
Reynsla af tollafgreiðslu er mikill kostur
Reynsla af innkaupum, birgðahaldi, vörustýringu eða sambærilegu starfi er kostur
Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Jákvætt viðmót, góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli


Umsóknarfrestur frá:

28. ágúst 2026

Umsóknarfrestur til:

11. september 2026