21. október 2026
Boli áfengislaus
Nú er loksins hægt að njóta Bola með sínu þroskaða og þétta bragði í sannkallaðri gleðivímu. Bruggmeistararnir gefa enga ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
ölgerðin
Í fréttaskýringarþættinum Kveik í kvöld var fjallað um stöðuna á drykkjarvörumarkaði hér á landi.
Líkt og kom fram í þættinum þá hafa umsvif Ölgerðarinnar aukist mikið á síðustu árum. Félagið keppir í flestöllum drykkjarvöruflokkum og er stærsti aðilinn í einhverjum þeirra. Þetta er breyting frá því sem áður var líkt og kom fram í þættinum og teljist félagið markaðsráðandi þá leggja samkeppnislög auknar skyldur á það umfram aðra á markaði.
Í þættinum var fjallað um viðskiptahætti sem hafa viðgengist lengi á markaðnum í tengslum við styrktarsamninga við nemendafélög í háskóla. Ölgerðin mun taka þessa samninga til skoðunar.
Ölgerðin mun vinna áfram með Samkeppniseftirlitinu að því að upplýsa þau atriði sem eftirlitið er með til skoðunar og fjallað var um í þættinum. Félagið telur sig starfa á mjög virkum samkeppnismarkaði og virkt eftirlit samkeppnisyfirvalda er mikilvægur þáttur í að stuðla að heilbrigðri samkeppni.
Komi í ljós að eitthvað í framgöngu Ölgerðarinnar á markaðnum standist ekki skoðun þá munum við taka það til endurskoðunar.