31. mars 2026
Nýtt bragð hjá Kristal
Taktu ákvörðun! Smakkaðu nýjan og fjólubláan Kristal með frískandi bláberja og granateplabragði 🫐
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
nýtt bragð
Í byrjun árs var því fagnað að 90 ár voru liðin frá því að íslenskt brennivín kom á markað. Í umfjöllun Morgunblaðsins af þessu tilefni kom fram að brennivínið hafi allar götur síðan átt sér fastan sess í tilveru landsmanna – mismikinn vissulega eftir tímabilum – og átt sér þekkta aðdáendur á borð við Jóhannes Kjarval listmálara. Raunar hefur hróður þess fyrir löngu borist út fyrir landsteinana og meðal þeirra sem talað hafa opinskátt um aðdáun sína eru tveir af þekktari rokkurum samtímans; Dave Grohl og gítarleikarinn Slash.