24. júlí 2026
Komdu þér á kortið með COLLAB og 66°NORÐUR
Hvert fór sumarið með þig? Í sumar kortleggjum við ferðalög landsmanna um allt land. Vertu með, settu ferðalagið þitt á ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
sjálfbærni
Bera hefur hlotið framúrskarandi einkunn í UFS-mati Reitunar þriðja árið í röð. Félagið fékk 87 stig af 100 mögulegum í mati ársins 2026, sem er hækkun um eitt stig frá fyrra ári. Með þeim árangri flokkast Bera í einkunnaflokk A3 og er meðal þeirra fyrirtækja sem ná hæstu einkunnum í matinu. Jafnframt hlaut félagið hæstu mögulegu einkunn fyrir gæði gagna, eða einkunnina 1.
UFS-mat Reitunar leggur mat á frammistöðu fyrirtækja á sviði umhverfisþátta, félagslegra þátta og stjórnarhátta. Bera er yfir meðaltali íslenskra fyrirtækja í öllum meginflokkum matsins, sem endurspeglar markvissa og heildstæða vinnu við að samþætta sjálfbærni við rekstur félagsins.
Árangurinn er afrakstur samstillts átaks starfsfólks og stjórnenda við að draga úr umhverfisáhrifum, efla öryggi og vellíðan starfsfólks og byggja upp ábyrga og sjálfbæra starfsemi til framtíðar.